Já góðan
daginn… Héðan er allt fínt að frétta, nema að það er alltaf
svoldið hvasst og kalt. En ég og Hjöddan létum það sko ekki á
okkur fá síðasta föstudag, heldur skelltum okkur á hestbak og
riðum út þótt við urðum gegnblautar, enda hetjur er það ekki
Hjödda??? 
Helgin var alveg
barasta mjög fín, við smöluðum á Kárastöðum á laugardagskvöld og
svo vigtuðum ég og pabbi lömbin meðan hinir voru að koma sér í ball
fílinginn. Svo var bara skellt sér í sturtu og á ball. Ég fór
reyndar öfugt við restina af skyldfólki mínu, ég fór í Ásbyrgi. Ég
ákvað sko að svíkja ekki réttarballið mitt frekar en fyrridaginn.
Þetta var bara rosa fjör, allar gömlu kempurnar, Daníel Viðar,
Sæli, Harold Aroz, Heimir Baldurs og fleiri snillingar.
Ég
dansaði bara allt ballið eiginlega, enda vorum við, ég, Tóta og
Sirrý langbestar á dansgólfinu. Svo reyndar tók ég nokkra geggjaða
snúninga með Gunnari Ægi mínum. (þá er ég ekki að meina
heimalninginn)
Svo þegar heim var
komið, þá leit ég yfir í Lækjarhvamm og sá (að ég hélt) að Óli var
kominn heim… Mér fannst þetta alveg stórfurðulegt, að Óli væri
kominn heim klukkan hálffjögur eftir ball.
EEeeeen
þegar ég var að rölta yfir með Júlíu þá sá ég að það voru tveir
hausar í eldhúsinu. Ég bara ohhh Óli hefur tekið Handsome með sér
heim eða eitthvað. Var svoleiðis búin að undirbúa ræðuna þegar ég
kom yfir. Ég skildi vagninn eftir fram í forstofu, strunsaði inn og
hvað haldiði að ég hafi séð??? Mágar mínir tveir sátu þar, þó
nokkuð vel í því, hámuðu í sig núðlur og hlustuðu á papana.
Svo
þegar ég kom æðandi þarna inn, þá bara – nei hæ, viltu ekki
núðlur??? Ég átti nú bara erfitt með að springa ekki úr hlátri, en
hva, því ekki að skella sér bara á núðlurnar… Þannig að þegar ég
var búin að koma barninu fyrir í rúminu þá var bara sest niður með
strákunum og hámað í sig. Þannig að það var bara mjög góður endir á
fínu kvöldi… En ég er sammála Hjöddu, hvar er slúðrið??? Ég er voða
lítið búin að frétta, veit bara hver gisti á Gauksmýri í þetta
skiptið, með hverjum Elín á Þverá var með í þetta skiptið, hvaða 10
ára stelpu Heimir var með í þetta skiptið, hvað Hulda og Rósa
voru lengi að djamma í þetta skiptið og hver var tekinn fullur og
með dóp í þetta skiptið… Hvar er restin af slúðrinu??? Yfir og
út…